Leikskólinn Álfaborg
Leikskólinn Álfaborg
Leikskólinn Álfaborg

Leikskólakennari

Leikskólinn Álfaborg auglýsir eftir leikskólakennara til starfa í 100% stöðu frá og með ágúst 2024. Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af skólastefnu Sveitarfélagsins Bláskógabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla sem og öðrum lögum er við eiga.

Leikskólinn Álfaborg starfar í anda Reggio Emilia og er staðsettur í Reykholti, Biskupstungum. 

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags leikskólakennara en tímabundin viðbótarlaun greiðist vegna átaksverkefnis til að fjölga leikskólakennurum. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Þátttaka í uppeldi og menntun leikskólabarna. 

·         Að fylgjast með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins. 

·         Þátttaka í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og faglegum verkefnum.  

·         Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra. 

·         Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum. 

·         Að gæta að öryggi leikskólabarna, menntun, þroska þeirra og líðan. 

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Leyfisbréf kennara, sbr. lög nr. 95/2019, III kafli 9. grein og IV kafli 20. grein. 

·         Reynsla í leikskólastarfi æskileg. 

·         Færni í mannlegum samskiptum. 

·         Hæfni og áhugi í starfi með börnum. 

·         Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð. 

·         Færni í ræðu og riti. 

·         Góð íslenskukunnátta æskileg. 

Fríðindi í starfi

·         Tímabundin viðbótarlaun 

·         Yfirvinnugreiðslur (6 klst.) 

·         Ívilnun vegna aksturs 

·         Fatastyrkur 

·         Frítt fæði 

·         Stytting vinnuvikunnar 

·         Sund/líkamsræktarkort Bláskógabyggðar 

·         Skapandi starfsumhverfi 

Auglýsing birt9. ágúst 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Leikskólinn Álfaborg, Reykholt, 806 Bláskógabyggð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar