Kópasteinn
Kópasteinn
Kópasteinn

Leikskólakennari óskast í spennandi störf

Ert þú ábyrgur, jákvæður og sjálfstæður leikskólakennari sem hefur gaman af nýjum áskorunum? Þá gætum við verið að leita að þér!

Leikskólinn Kópasteinn hóf starfsemi 1964 og er því elsti leikskóli Kópavogs. Skólinn er staðsettur í Borgarholtinu við Hábraut 1, stutt er í allar helstu menningarstofnanir bæjarins. Í skólanum eru 98 börn á fimm deildum og er húsnæði skólans í tveimur byggingum. Starfað er eftir Aðalnámskrá leikskóla með áherslu á lífsleikni, tónlist og málrækt. Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starfsfólks sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga. Gaman saman eru einkunnarorð skólans og endurspeglar það daglegt starf.

Heimasíða leikskólans er kopasteinn.kopavogur.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
  • Starfið felur í sér almenna kennslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
  • Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Auglýsing stofnuð26. mars 2024
Umsóknarfrestur9. apríl 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Hábraut 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar