Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Leikskólakennarar - Leikskólinn Grænaborg

Leikskólinn Grænaborg í Suðurnesjabæ auglýsir eftir leikskólakennara í fullt starf sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í að byggja upp faglegt, hlýtt og öflugt leikskólastarf.

Leikskólinn er sex deilda heilsueflandi leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, náttúru, listir, sköpun og útiveru. Í skólanum eru börn á aldrinum 18 mánaða til grunnskólaaldurs.

Leikskólinn er staðsettur í nýlegu og vel búnu húsnæði við Byggðaveg í Sandgerði, umkringdur fallegri náttúru sem nýtist vel í daglegu starfi með börnunum. Starfsmannahópurinn telur um 40 starfsmenn og í skólanum eru allt að 134 börn.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð samskiptahæfni
  • Sveigjanleiki
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.

Skilyrði fyrir ráðningu er hreint sakarvottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Elsa Hannesdóttir, leikskólastjóri, í tölvupósti á netfangið [email protected].

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, kynningarbréf ásamt upplýsingum um umsagnaraðila og annað er málið varðar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Suðurnesjabær er eitt fjögurra sveitarfélaga á Suðurnesjum og eru íbúar rúmlega 4.000 talsins. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag og samanstendur af byggðarkjörnunum Garði og Sandgerði. Sveitarfélagið er ört stækkandi en mikil uppbygging er framundan hjá sveitarfélaginu, fjölgun íbúa og spennandi tækifæri til framtíðar á svæðinu. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur23. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Byggðavegur 5
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar