

Leikskólakennari í Fögrubrekku
Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólanum Fögrubrekku.
Leikskólinn Fagrabrekka er fjögra deilda leikskóli þar sem dvelja um 70 börn. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en mikil áhersla er lögð á að börnin læri af reynslu. Leikskólinn hefur sett þau markmið bæði börn og starfsfólk beri virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og að sýna gleði og frumkvæði í leik og starfi. Í Fögrubrekku reynum við að láta börnin fylgja sínum hóp, bæði börnum og kennurum, í gegnum skólagönguna. Það stuðlar að því að börnin mynda sterk tengsl bæði við leikfélaga sína og kennara. Einnig hjálpar þetta við að byggja upp gott samband á milli leikskóla og foreldra, þar sem við kynnumst vel á þeim árum sem börnin eru í leikskólanum.
Takist ekki að ráða leikskólakennara með leyfisbréf í starfið kemur til greina að ráða starfsmann með reynslu og metnað fyrir kennslu og umönnun ungra barna.
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara.
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra.
- Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
- Samskipti og samvinna við foreldra.
- Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni.
- Leyfisbréf til kennslu.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
- Hæfni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Ábyrgð og áreiðanleiki.
- Skilyrði er að viðkomandi tali góða íslensku.
- Hreint sakavottorð.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Íslenska










