Leikskólinn Hulduheimar
Leikskólinn Hulduheimar
Leikskólinn Hulduheimar

Leikskólakennarar

Leikskólinn Hulduheimar auglýsir eftir leikskólakennurum frá og með 12. janúar 2026.

Leitað er að leikskólakennurum sem eru tilbúnir að starfa í leikskóla þar sem fram fer faglegt leikskólastarf með áherslu á leik, samvinnu, traust og gleði.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Áherslur Hulduheima eru á leik barna, félagslega færni, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og hvetjandi námsumhverfi. Leiðarljós leikskólans eru Virðing - Lýðræði - Samfélag.

Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Að fylgist vel með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í 
    samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Að taka þátt í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og sinnir faglegum verkefnum sem 
    deildarstjóri felur honum.
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum 
    undir stjórn leikskólastjóra.
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi 
    leikskólans.
  • Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður 
    felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara.
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð íslenskukunnátta æskileg
Fríðindi í starfi
  • Afsláttarkort Árborgar
  • Styttri vinnuvika
Auglýsing birt17. desember 2025
Umsóknarfrestur2. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Erlurimi 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar