
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar
Mosfellsbær er rúmlega 13.000 manna, ört vaxandi, framsækið og nútímalegt bæjarfélag í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Mosfellsbær er sjöunda fjölmennasta sveitarfélag landsins.

Leiðtogi málaflokks fatlaðs fólks
Velferðarsvið Mosfellsbæjar leitar að öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á málefnum fatlaðs fólks.
Viðkomandi ber ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu bæði faglega og fjárhagslega. Undir málaflokkinn heyra 13 starfsstöðvar með á fjórða hundrað starfsmanna.
Um er að ræða umfangsmikið og krefjandi starf í góðu og nærandi starfsumhverfi þar sem viðkomandi leiðir daglega þjónustu, umbætur, sem og framþróun í málaflokknum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra faglegri þjónustu sviðsins, efla hana og tryggja þjónustu til fatlaðra íbúa sveitarfélagsins
- Tryggja að þjónusta sé í samræmi við gildandi lög, reglur, stefnur, áætlanir og annað sem undir málaflokkinn heyrir
- Stuðla að framsækni og nýjungum í málaflokknum
- Halda utan um formleg samskipti við utanaðkomandi aðila, svo sem Jöfnunarsjóð, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Ráðgjafar- og greiningarstöð og fleiri
- Fylgja breytingum, nýjungum og framþróun eftir
- Hafa umsjón með þjónustusamningum við þriðja aðila
- Tryggja að rekstur málaflokksins sé innan fjárheimilda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi ásamt framhaldsmenntun
- Þekking á málaflokki fatlaðs fólks
- Víðtæk reynsla af starfi innan stjórnsýslu
- Þekking af gerð fjárhagsáætlana
- Yfirburða samskiptahæfni, þjónustumiðuð hugsun og geta til að starfa í hópi
- Stjórnunar og leiðtogahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking á þeim lögum og reglugerðum sem tengjast starfinu
- Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Auglýsing birt1. apríl 2025
Umsóknarfrestur22. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Nettó Hrísalundi - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó

Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Landspítali

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Þjónustustjóri Sérverkefna
AÞ-Þrif ehf.

Viltu stýra rekstri rafveitu Veitna?
Veitur

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Fjármálastjóri
GoPro

Kommunikasjonssjef (CCO)
Signatur AS

Yfirmaður þrifadeildar | Head of housekeeping
Íslandshótel