
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Leiðbeinandi í félagsstarfi aldraðra
Starfið felur í sér skipulagningu og umsjón með félagsstarfinu og leiðbeiningar við verkefni, s.s. hannyrðir og listsköpun af ýmsu tagi, skipulagningu námskeiða fyrir fræðslu og afþreyingu auk þematengdra verkefna með vinnu-og hæfingarstað fatlaðra.
Félagsstarfið er vettvangur samfunda, samskipta og skapandi athafna. Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem hefur áhuga á málefnum aldraðra og fatlaðra, reynslu af vinnu við skapandi verkefni og sýnir metnað og frumkvæði í starfi.
Erum við að leita að þér?
Menntunar- og hæfniskröfur
• Þekking og reynsla af vinnu með öldruðum.
• Þekking og reynsla af vinnu með fólki með fötlun.
• Reynsla af vinnu við skapandi verkefni.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
• Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
•Skipuleggja og hafa umsjón með virkni, skemmtun og áhugahvetjandi verkefnum.
•Leiðbeina við verkefni s.s. hannyrðir og listsköpun af ýmsu tagi.
•Samvinna við vinnu- og hæfingarstað fatlaðra um námskeið og afþreyingu.
Auglýsing birt17. ágúst 2021
Umsóknarfrestur30. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Tanntæknir- Aðstoðamaður tannlæknis
Tannlæknastofa Kópavogs

Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannir tannlæknastofa ehf

Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Shipping and Logistics Coordinator
JBT Marel

Miðlægt eldhús í Reykjanesbæ
Skólamatur

Starfsmaður í dagdvöl aldraðra í Sunnuhlíð
Sunnuhlíð

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi