Aurbjörg
Aurbjörg
Aurbjörg

Leiðandi framendaforritari

Aurbjörg leitar að reynslumiklum framendaforritara í leiðandi hlutverk til að móta lausnir sem hafa raunveruleg áhrif á fjárhagslega velferð fólks. Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að skapa framúrskarandi notendaupplifun, hefur metnað til að drífa verkefni áfram og vill hafa áhrif á bæði tæknilegar ákvarðanir og framtíð fjártæknilausnarinnar www.aurbjorg.is.

Í þessu hlutverki munt þú:

  • leiða þróun framenda Aurbjargar og móta notendaupplifun lausnarinnar

  • taka virkan þátt í hönnun og þróun nýrra vara og virkni

  • hafa áhrif á tæknilegar ákvarðanir, arkitektúr og áframhaldandi þróun tæknilausna

  • taka þátt í að móta vöruna í nánu samstarfi við stjórnendur og teymi

  • bera ábyrgð á verkefnum frá hugmynd að fullbúinni lausn

Við leggjum ríka áherslu á að þróa einfaldar, vel úthugsaðar og notendamiðaðar lausnir þar sem gæði, notendaupplifun og tæknilegur metnaður fara saman.

Þú passar vel í hlutverkið ef þú:

  • hefur að minnsta kosti fimm ára reynslu af hugbúnaðarþróun

  • hefur yfirgripsmikla reynslu af React og nútíma framendaþróun

  • vinnur sjálfstætt en nýtur þess jafnframt að vera hluti af öflugu teymi

  • hefur frumkvæði og drifkraft til að leiða verkefni áfram

  • hugsar út frá bæði notendum og tæknilegum gæðum

  • hefur áhuga á að þróa lausnir sem hafa raunveruleg áhrif á fólk

  • reynslu af bakendaþróun þó að það sé ekki skilyrði

Hjá Aurbjörgu vinnur þú í litlu og metnaðarfullu teymi þar sem boðleiðir eru stuttar og hugmyndir verða hratt að veruleika. Þú færð raunverulegt svigrúm til að hafa áhrif á vöruna, vinna þvert á ólík fagsvið og taka þátt í að móta lausnir sem þúsundir notenda nýta í daglegu lífi.

Tæknistakkurinn okkar:

Framendi

  • React

  • Next.js

  • TypeScript

  • Vite

  • TanStack Query

  • Tailwind CSS

  • React Native

  • Expo

Bakendi

  • .NET 8

  • C#

  • Kubernetes

  • Docker

  • Dapr

  • Microsoft Azure

Auglýsing birt8. júlí 2026
Umsóknarfrestur15. júlí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.HugbúnaðarprófanirPathCreated with Sketch.Next.JSPathCreated with Sketch.ReactPathCreated with Sketch.Sjálfvirkar prófanirPathCreated with Sketch.TypeScriptPathCreated with Sketch.Vefforritun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar