
Embla Medical | Össur
Össur var stofnað á Íslandi árið 1971 og er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Markmið okkar er að bæta hreyfanleika fólks og gera því kleift að lifa lífinu án takmarkana. Embla Medical var stofnað árið 2024 til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins í heilbrigðistækni. Vörumerkin Össur, College Park, Fior & Gentz og ForMotion tilheyra öll Emblu Medical.
Við erum leiðandi afl á heimsvísu með um 4.500 starfsmenn í yfir 40 löndum. Höfuðstöðvarnar eru á Íslandi en starfsstöðvar víða um heim sinna vaxandi markaði. Félagið er skráð á hlutabréfamarkað í Danmörku.
Mannauðurinn er kjarninn í okkar árangri. Sem hátæknifyrirtæki leggjum við ríka áherslu á að laða að okkur hæft og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur sig fram og sýnir frumkvæði.

Lausnahönnuður á hugbúnaðarsviði
Við leitum að öflugum einstaklingi til að taka þátt í kröfugreiningu, útfærslu og framkvæmd á veigamikilli og metnaðarfullri stafrænni umbreytingu Össurar. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi verkefni í framsæknu og krefjandi umhverfi. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri reynslu við hugbúnaðargerð og lausnahönnun. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem á auðvelt með að fá fólk með sér í lið og ná því besta fram í öðrum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf eða reynsla sem nýtist í starfi
Reynsla og þekking á hugbúnaðarlausnum og stjórnun þverfaglegra teyma í hugbúnaðarþróun
Greiningarhæfni, öguð og nákvæm vinnubrögð
Framúrskarandi samskiptahæfni, mjög góð enskukunnátta og þjónustulund
Þekking á sjálfsafgreiðsluferlum og breytingastjórnun er æskileg
Þekking á fyrirtækjarekstri er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
Þarfagreining og hönnun á stafrænum lausnum
Leiðtogi þverfaglegs teymis sérfræðinga
Utanumhald og stýring á verktökum og ráðgjöfum
Samvinna við einingar og starfsstöðvar um allan heim
Auglýsing birt8. janúar 2021
Umsóknarfrestur18. janúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Hugbúnaðarsérfræðingur
VÍS

Framkvæmdastjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar
Hrafnista

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.

Senior QA Analyst
Fenris Creations

Rannsóknartæknir
BM Vallá

Software Engineer
Treble Technologies

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Sveitarfélagið Hornafjörður

Byggingarverk- eða tæknifræðingur
JTV ehf

Data Engineer
atNorth

Sérfræðingur í innri endurskoðun
Landsbankinn

SnerpaPower - Sérfræðingur í skýjalausnum
SnerpaPower

Verkefnastjóri hjá Bygging og Viðhald
Bygging og Viðhald ehf