Heiðarskóli
Heiðarskóli
Heiðarskóli

Laus staða stuðningsfulltrúa og starfsmanna í frístund

Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit 301, Akranes, auglýsir eftirfarandi stöður:

  • 94% stöðu stuðningsfulltrúa og frístundastarfsmanns, vinnutími 8:00 – 16:00 fjóra daga vikunnar og 8:00 – 13:30 á föstudögum. Um tímabundna stöðu er að ræða frá 24. ágúst 2026 – 8. júní 2027.

  • 40% stöðu starfsmanns í frístund, vinnutími 12:30 – 16:30 mánudaga til fimmtudaga. Um tímabundna stöðu er að ræða frá 24. ágúst 2026 – 8. júní 2027.

Það er möguleiki á að skipta starfinu upp og ráða í frístundastarfið og stuðningsfulltrúastarfið ef ekki næst að ráða starfsmenn 94% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stuðningsfulltrúar aðstoða nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Oft er um að ræða nemendur sem þurfa sérstök úrræði vegna námserfiðleika, félagslegra aðstæðna, fötlunar eða þroskafrávika.

Frístundaleiðbeinendur. Gerð er krafa um verkkunnáttu og starfsreynslu sem nýtist í starfi. Mikilægt er að starfsmenn hafi ánægju að vera úti með nemendum og áhuga á fjölbreyttum verkefnum. Starfsmenn vinna með börnum á yngsta stigi. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk. 

Hæfniskröfur: 

  • Reynsla af vinnu með börnum er æskileg  

  • Góðir skipulagshæfileikar  

  • Lipurð og sveigjanleiki í starfi 

  • Góð íslenskukunnátta 

Fríðindi í starfi

Frítt er í íþróttahúsið (sund og rækt) Heiðarborg fyrir starfsmenn skólans 

Auglýsing birt10. ágúst 2026
Umsóknarfrestur19. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Heiðarskóli 221406 , 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar