

Launasérfræðingur
Launasérfræðingur
Viðskiptavinur Intellecta óskar eftir að ráða launasérfræðing til starfa. Viðskiptavinurinn er með höfuðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu, starfar í lifandi og skemmtilegu umhverfi og vinnustaðurinn er stór og fjölbreyttur.
Helstu verkefni:
• Launavinnsla
• Skil á skilagreinum og greiðslum til opinberra aðila, stéttarfélaga og annarra vegna launatengdra gjalda
• Umsjón með skráningu launaupplýsinga í launakerfi
• Túlkun og framfylgni kjarasamninga
• Upplýsingagjöf og ráðgjöf til starfsmanna og stjórnenda vegna kjaramála
• Greiningar og framsetning tölulegra gagna
Hæfniskröfur:
• Þekking og reynsla af launavinnslu, kjaramálum, veikindarétti og öðru sem snýr að kjaramálum
• Reynsla af H3 mannauðs- og launakerfi
• Þekking á tímaskráningakerfum eins og Mytimeplan
• Góð færni í Excel og góð almenn tölvukunnátta
• Rík þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptafærni











