Grímsnes- og Grafningshreppur
Grímsnes- og Grafningshreppur
Grímsnes- og Grafningshreppur

Launafulltrúi

Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir að ráða launafulltrúa í 75 - 100% starf.

Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áhuga á tölum og sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf.
Launafulltrúi sér um launavinnslu sveitarfélagsins ásamt öðrum almennum skrifstofustörfum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur
Þekking af launavinnslu og/eða bókhaldi skilyrði.
Sérhver menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
Góð kunnátta og færni í Excel.
Þekking á Dk bókhaldskerfi kostur.
Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Hæfni til að greina gögn og upplýsingar.
Þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Launavinnsla og frágangur launa.
Túlkun kjarasamninga og eftirlit með framkvæmd þeirra.
Upplýsingagjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál.
Aðstoð og ráðgjöf til stjórnenda í málum tengdum mannauði og starfsmannahaldi s.s. vegna ráðningarsamninga.
Ýmsar skýrslugerðir, greiningar, samantektir og úrvinnsla á sviði kjaramála.
Skjalavarsla.
Önnur verkefni við s.s. bókhald, uppgjör og almenn skrifstofustörf.
Auglýsing birt29. september 2021
Umsóknarfrestur24. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Stjórnsýsluhúsið Borg, 805 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar