
SÁÁ
SÁÁ er almannasamtök með um sjö þúsund félagsmenn. Samtökin annast rekstur fjögurra meðferðarstofnana þar sem heilbrigðisstarfsmenn veita áfengis- og vímuefnasjúklingum faglega heilbrigðisþjónustu í hæsta gæðaflokki.
Þetta eru sjúkrahúsið Vogur, Vík á Kjalarnesi og göngudeildirnar í Von, Efstaleiti 7 í Reykjavík og Hofsbót 4 á Akureyri.

Læknir óskast til starfa hjá SÁÁ
Laus er til umsóknar staða læknis á sjúkrahúsinu Vogi. Sóst er eftir lækni með áhuga á meðferð og þjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur þeirra. Helst er óskað eftir lækni í 100% starf en hlutastarf eða tímabundið starf kemur til greina.
Starf hjá SÁÁ gefur einstakt tækifæri til að auka færni og læra nýja þekkingu til að sinna betur þeim fjölbreytta og fjölmenna hópi sem hefur fíknsjúkdóm. Slík reynsla nýtist öllum læknum í sínum klínísku störfum.
Sjúkrahúsið Vogur er með rúm fyrir 40 sjúklinga þar sem veitt er inniliggjandi afeitrun, sálfélagsleg meðferð og undibúningur að endurhæfingu í teymisvinnu með öðru heilbrigðisstarfsfólki. Á göngudeild við sjúkrahúsið Vog er einnig veitt lyfjameðferð við ópíóíðafíkn fyrir um 400 manns, á sérhæfðri göngudeild með lyfjunum buprenorphine, buprenorphine/naloxone og Methadone, ýmist per os, sublingual eða með subcutan forðasprautum. Sálfélagsleg meðferð heldur áfram fyrir inniliggjandi á meðferðarstöðinni Vík í Kjalarnesi fyrir 60 manns í einu, og göngudeildir SÁÁ í Efstaleiti og á Akureyri, veita fjölbreytta meðferð og þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg læknisþjónusta á sérhæfðu sjúkrahúsi fyrir fólk með fíknsjúkdóm, ásamt vaktþjónustu (gæsluvaktir) einnig fyrir aðrar starfsstöðvar. Innlagnir, greiningar og meðferð vegna fráhvarfa og annarra afleiðinga neyslu, þátttaka í sjúklingafræðslu og fræðslu fyrir fagfólk
Þátttaka í teymisvinnu ásamt hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, riturum, áfengis- og vímuefnaráðgjöfum og sálfræðingum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sérfræðiréttindi úr flestum sérgreinum kemur til greina, s.s. geðlækningum, heimilislækningum og lyflækningum.
- Almennur læknir með lækningaleyfi án sérfræðimenntunar kemur einnig til greina
- Íslenskukunnátta og/eða mjög góð enskukunnátta er skilyrði
- Góð færni í mannlegum samskiptum og skipulögð vinnubrögð
Auglýsing birt11. nóvember 2024
Umsóknarfrestur2. desember 2024
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Læknir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (5)

Viðskiptastjóri Canon Medical Systems á Íslandi
Ofar

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á lyflækningadeild
Landspítali

Sérnámsstöður í heimilislækningum við heilsugæslu HSU á Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sérnámsstöður í heimilislækningum við heilsugæslu HSU í Hveragerði
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali