Heilsuvernd Heilsugæsla - Urðarhvarfi
Heilsuvernd Heilsugæsla - Urðarhvarfi
Heilsuvernd Heilsugæsla - Urðarhvarfi

Heimilislæknir óskast til starfa hjá Heilsuvernd

Vilt þú starfa í metnaðarfullu og öflugu teymi þar sem fagmennska, góð samskipti og jákvæður starfsandi eru í fyrirrúmi?

Heilsuvernd heilsugæsla leitar að heimilislækni til liðs við öflugan hóp heilbrigðisstarfsfólks. Starfsemi okkar fer ört vaxandi og því viljum við styrkja enn frekar okkar góða teymi.

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu, sýnir sjálfstæði í starfi og leggur áherslu á góð samskipti og teymisvinnu. Um er að ræða fullt starf, en hlutastarf kemur einnig vel til greina. Starfið er að mestu unnið á dagvinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almennar heimilislækningar
  • Bráðaþjónusta
  • Teymisvinna
  • Þátttaka í síðdegisvöktum
  • Þátttaka í faglegu þróunar-, gæða- og vísindastarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Góð samskiptahæfni og áhugi á teymisvinnu
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar