Fuglavernd
Fuglavernd
Fuglavernd

Kynningarfulltrúi vegna endurheimtar votlendis

Viltu taka þátt í mikilvægu og spennandi verkefni sem tengir vísindi og náttúruvernd?

Fuglavernd leitar að metnaðarfullum aðila til að sinna krefjandi starfi sem felur í sér markvissa miðlun þekkingar um náttúru og líffræðilega fjölbreytni til hagsmunaaðila, samstarfsaðila og almennings.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér að sinna samfélagsmiðlum og vefsíðu LIFE verkefnis um endurheimt votlendis í þágu fugla, gróðurs og loftslags, skrifa fréttatilkynningar og eiga í samskiptum við fjölmiðla og fjölmiðlafulltrúa, ásamt því að skipuleggja atburði og uppákomur í samstarfi við önnur félög og stofnanir og  sjá til þess að heildarásýnd verkefnisins veki traust og áhuga.

Menntunar- og hæfniskröfur

Gerð er krafa um:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Afburðagott vísindalæsi ásamt áhuga á náttúru Íslands, náttúruvernd og umhverfismálum
  • Afburðahæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Framúrskarandi vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
  • Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Æskileg hæfni:

  • Reynsla af verkefnastjórnun tengt miðlun og kynningarmálum
  • Reynsla af notkun samfélagsmiðla á markvissan hátt
  • Hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan og markvissan hátt til ólíkra markhópa
  • Reynsla af viðburðastjórnun
  • Þekking og reynsla af uppsetningu efnis á myndrænan hátt
  • Þekking og reynsla af gerð myndbanda
  • Reynsla af notkun vefumsjónarkerfa
Fríðindi í starfi

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag.

Starfshlutfall er 100%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2025.

Umsókn skal vera skrifleg og samanstanda af ferilskrá og kynningarbréfi sem lýsir umsækjanda og af hverju viðkomandi telur sig hæfan í starfið og vill sinna því.

 

Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2025. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknir skal senda á [email protected]

Auglýsing birt7. maí 2025
Umsóknarfrestur29. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar