Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Iðjuþjálfi í þjónustudeild aldraðra

Þjónustu- og ráðgjafardeild aldraðra leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf iðjuþjálfa. Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf til aldraðra Kópavogsbúa og aðstandenda þeirra.
  • Mat á þjónustuþörf.
  • Þátttaka í skipulagningu og starfi sérhæfðrar dagdeildar í Roðasölum.
  • Stuðningur og þjálfun til starfsmanna í félagslegri heimaþjónustu.
  • Gerð og eftirfylgni dagskipulags.
  • Aðstoð vegna stoðtækja.


Menntunar- og hæfniskröfur

  • BS gráða í iðjuþjálfun.
  • Reynsla af starfi með öldruðum kostur.
  • Þekking eða reynsla af notkun matstækja æskileg.

Við leitum að einstaklingum sem hafa hæfni í mannlegum samskiptum, eru lausnamiðaðir og hugsa út fyrir kassann. Íslenskukunnátta er nauðsynleg og bílpróf er æskilegt.

Starfshlutfall er 100% eða samningsatriði.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar þurfa að skila sakavottorði.

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.

Frekari upplýsingar veitir Anna Klara Georgsdóttir deildarstjóri þjónustu- og ráðgjafardeildar aldraðra s. 441 0000.

Auglýsing birt6. september 2019
Umsóknarfrestur22. september 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar