Leikskólinn Klettaborg
Leikskólinn Klettaborg

Klettaborg - Sérkennsla

Þroskaþjálfi eða aðili með reynslu af leikskólastarfi óskast í Klettaborg til að sinna sérkennslu. Í starfinu felst að sinna börnum frá 2ja ára til 6 ára sem þurfa leiðsögn og kennslu í daglegu starfi ýmist einstaklingslega eða í hóp.

Klettaborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á að börn læri í gegnum leik. Markvisst er unnið með læsishvetjandi umhverfi, félagsfærni, og sjálfseflingu barna. Einnig er lögð áhersla á gæði í samskiptum við börn, foreldra og aðra starfsmenn. Starfið í Klettaborg einkennist af leik í flæði sem og í hópum þegar það á við, bæði úti og inni.

Nýlega fékk Klettaborg hvatningarverðlaun Skóla- og frístudarsviðs fyrir verkefnið "Litlu laukarnir" sem er verkefni til að stuðla að góðri matarmenningu barna.

Í Klettaborg starfar frábær og samheldinn starfsmannahópur sem vantar fleiri í teymið.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Starfið getur verið 75-100% starf eftir samkomulag við leikskólastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna undir stjórn sérkennslustjóra og deildarstjóra sem tekur mið af starfslýsingu leikskólakennara þegar það á við. 
  • Kennsla og þjálfun barna sem þurfa aðstoð í daglegu starfi leikskólans.
  • Gerð einstaklingsáætlana í samvinnu í sérkennslustjóra og deildarstjóra.
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra þegar það á við.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum nauðsynleg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í starfi og samskiptum.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Íslenska B1 skv. samkvæmt samevrópska túngumálarammanum.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuvika
  • Menningakort-bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt14. mars 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dyrhamrar 5, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar