Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing

Kjarkur endurhæfing óskar eftir starfsfólki í aðhlynningu

Kjarkur endurhæfing leitar að öflugu starfsfólki í aðhlynningu til að sinna einstaklingum sem eru í endurhæfingu. Starfshlutfall er 80-100%.

Unnið er á morgun-, kvöld- og næturvöktum og aðra hvora helgi.

Kjarkur endurhæfing er endurhæfingarstofnun sem tekur á móti einstaklingum á aldrinum 18-67 ára sem hafa lokið frumendurhæfingu en þurfa áframhaldandi aðstoð við að aðlagast breyttum aðstæðum og færni.

Hjá Kjarki endurhæfingu starfar fjölbreyttur hópur við endurhæfingu, svo sem félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfar, íþróttafræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfari, talmeinafræðingur og sérhæft starfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Frumkvæði í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi
  • Jafnlaunavottun
  • Íþróttastyrkur
  • Virkt starfsmannafélag
  • Styttri vinnuvika
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur19. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hátún 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar