
Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu og vinnur að söfnun gagna, úrvinnslu og birtingu tölfræðilegra upplýsinga um landshagi Íslands og þjóðfélagsleg málefni.
Hjá Hagstofunni starfar öflugur hópur 125 starfsmanna. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt með sveigjanlegum vinnutíma og styttri vinnuviku. Boðið er upp á heilsustyrk fyrir þá sem hreyfa sig og samgöngustyrk fyrir þá sem nýta umhverfisvænan ferðamáta til vinnu. Virkt starfsmannafélag skipuleggur ýmsa viðburði fyrir starfsfólk.
Leiðarljós Hagstofunnar eru þjónusta – áreiðanleiki - framsækni.
Frekari upplýsingar um stofnunina má finna á vef Hagstofunnar www.hagstofa.is

Kerfisstjóri
Viltu bætast í öflugan og skemmtilegan hóp starfsfólks Hagstofu Íslands?
Hagstofa Íslands leitar eftir kerfisstjóra til starfa. Starfið felst í rekstri og áframhaldandi uppbyggingu á tölvuumhverfi stofnunarinnar. Kerfisstjóri mun sinna rekstri netþjóna og fjölbreyttra kerfislausna sem eru nauðsynlegar í daglegum rekstri Hagstofunnar auk þess að koma að rekstri útstöðva og þjónustu við starfsfólk.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna í hóp og eigi auðvelt með að starfa með öðrum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Þekking og reynsla af rekstri Windows tölvukerfa er skilyrði
Þekking á sýndarumhverfum fyrir tölvurekstur
Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa
Þekking og reynsla af rekstri vélbúnaðar
Vilji og geta til að læra nýja hluti
Þjónustulund og góð samskiptahæfni
Þolinmæði og yfirvegun
Þekking og reynsla af uppsetningu og rekstri Linux
Þekking og reynsla af vöktunarkerfum
Skipulögð og öguð vinnubrögð
Þekking á skriftunarmálum er kostur
Háskólapróf í tölvunarfræði, kerfisfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun
Auglýsing birt7. október 2021
Umsóknarfrestur18. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 21A, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar





