Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Talmeinafræðingur í grunnskólum

Spennandi starf talmeinafræðings í skóla- og frístundaþjónustu.

Skóla- og frístundaþjónusta Vesturmiðstöðvar, auglýsir stöðu talmeinafræðings. Talmeinafræðingur sinnir m.a. greiningum á málþroska- og framburðarfrávikum, talþjálfun, ráðgjöf og fræðslu til foreldra og starfsfólks skóla. Leitað er eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með einlægan áhuga á þjónustu við börn og fjölskyldur.

Vesturmiðstöð er framsækinn vinnustaður sem býður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í þverfaglegu samstarfi og uppbyggingu á þjónustu við íbúa í borgarhlutanum. Í boði er vinna með metnaðarfullum hópi sérfræðinga skóla- og frístundaþjónustu og velferðarsviðs. Á miðstöðinni starfa meðal annars talmeinafræðingar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og kennslu- og hegðunarráðgjafar og ráðgjafaþroskaþjálfi, að málefnum barna, skóla og fjölskyldna í borgarhlutanum.
Unnið er samkvæmt menntastefnu Reykjavíkurborgar Látum draumana rætast og sameiginlegu verkefni skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs Betri borg fyrir börn sem hóf göngu sína um síðustu áramót. Markmið verkefnisins er að efla þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í skóla- og frístundastarfi og þétta samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs.

Vesturmiðstöð er til húsa að Laugavegi 77.

Menntunar- og hæfniskröfur
Meistarapróf í talmeinafræði og leyfi til að starfa sem talmeinafræðingur.
Þekking og reynsla af störfum talmeinafræðinga.
Reynsla af starfi með börnum er æskileg.
Þekking á starfi grunnskóla er æskileg.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Góð samstarfshæfni og lausnamiðuð hugsun.
Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í starfi.
Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti (B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum).
Helstu verkefni og ábyrgð
Skima fyrir og greina framburðar- og málþroskavanda með áherslu á áætlanagerð og eftirfylgd.
Skilgreina þjálfunarþörf vegna framburðar- og málþroskavanda og sinna talþjálfun ásamt því að meta árangur íhlutunar.
Þátttaka í teymisvinnu með starfsfólki grunnskóla og veita ráðgjöf um viðeigandi úrræði.
Leiðbeina og fræða foreldra og kennara um málþroska og frávik í málþroska og leiðir til að efla hann.
Þátttaka í þróun skólastarfs er varðar málþroska og læsi í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk skóla og samstarfsfólk.
Stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir framburðar- og málþroskavanda barna og tryggja snemmtæka íhlutun í samstarfi við stjórnendur skóla.
Þátttaka í teymisvinnu með starfsfólki Vesturmiðstöðvar.
Auglýsing birt19. september 2022
Umsóknarfrestur3. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Laugavegur 77, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar