Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennsla í dönsku og umsjón á unglingastigi - Hraunvallaskóli

Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna dönskukennslu og umsjón á unglingastigi skólaárið 2023-2024.

Leitað er eftir kennara sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi á unglingastigi þar sem lögð er áhersla á samþættingu námsgreina, sjálfstæði nemenda og samvinnu kennara. Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
Reynsla af kennslu æskileg
Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Stundvísi og samviskusemi
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast dönskukennslu  og umsjón á unglingastigi í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra.
Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Auglýsing birt22. maí 2023
Umsóknarfrestur5. júní 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar