Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Kennari - Patreksskóli

Vilt þú vera hluti af metnaðarfullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru hafðir að leiðarljósi?

Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Lögð er áhersla á teymisvinu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Jónína Helga Sigurðard. Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi

  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund

  • Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla s.s. Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor ofl.

Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Aðalstræti 53, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar