Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Stuðningsfulltrúi - Patreksskóli

Viltu slást í hóp starfs­manna sem hafa starfs­gleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leið­ar­ljósi? Meðal áherslna Patreks­skóla er faglegt lærdóms­sam­félag, einstak­lings­miðað nám, leið­sagn­arnám og samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfinu.

Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara eða sérkennara, eftir áætlun og leiðsögn þeirra. Fylgir einum eða fleiri nemendum í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum. Situr fundi með umsjónarkennurum.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Nánari upplýsingar veitir Jónína Helga Sigurðardóttir Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsóknir sendist á netfangið [email protected]. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
  • Reynsla af uppeldi og kennslustörfum í grunnskóla æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og tölvukunnátta
  • Vilji til að bæta við þekkingu sína
  • Stundvísi
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur4. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Aðalstræti 53, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar