

Kennari óskast - Skarðshlíðarleikskóli
Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir kennara í 50-100% starf.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skarðshlíðarleikskóli er nýr fjögurra deilda skóli, staðsettur að Hádegisskarði 1. Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og er áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreinakenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.
Þar sem þetta er nýr leikskóli færð þú gullið tækifæri til að taka þátt í að móta námskrá leikskólans, búa til hefðir og starfa í nánu samstarfi við grunnskóla, tónmenntaskóla, íþróttahús og bókasafn, því við verðum öll í sömu byggingunni.
Við leggjum áherslu á að skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt að mörkum.



























