Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Leikskólinn Arnarberg

Leikskólinn Arnarberg auglýsir eftir kennara í 100% starf.

Arnarberg vinnur markvist með læsi og læsishvetjandi umhverfi, lögð er áhersla á að skapa hvetjandi umhverfi í læsi. Einnig er lögð áherslu á hreyfingu og hefur skólinn afnot af Bjarkarhúsinu sem er við hliðina á skólanum.

Umhverfi skólans er rólegt og friðsælt og nýt góðs af staðsetningunni þar sem er stutt í miðbæinn og strætisvagnaleiðir, Hellisgerði og Lækinn.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um.

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Nánari upplýsingar veitir Bjarney Kristín Hlöðversdóttir, leikskólastjóri í síma 553493 [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 09. janúar 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt18. desember 2025
Umsóknarfrestur9. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Haukahraun 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar