

Kennarastöður við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli og í honum eru nemendur á aldrinum 1 – 16 ára. Kennt er í báðum byggðakjörnum, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og nemendum á grunnskólaaldri er ekið á milli byggðakjarna
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli vinnur samkvæmt uppeldisaðferðinni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
-
Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá.
-
Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
-
Annast kennslu nemendahóps.
-
Vinna með bekkjarbrag og menningu.
-
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
-
Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarverkefnum innan skólans.
-
Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
-
Samskipta og samstarfshæfni.
-
Frumkvæði og faglegur metnaður.
-
Ábyrgð í starfi og stundvísi.
-
Skipulagshæfileikar.
-
Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
-
Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
Íslenska










