

Umsjónarkennari við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Leitað er að umsjónakennurum sem eru reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli og í honum eru nemendur á aldrinum 1 – 16 ára. Kennt er í báðum byggðakjörnum, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og nemendum á grunnskólaaldri er ekið á milli byggðakjarna
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli vinnur samkvæmt uppeldisaðferðinni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
·Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá.
·Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp
·Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
· Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
· Annast kennslu nemendahóps.
· Vinna með bekkjarbrag og menningu.
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
· Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarverkefnum innan skólans
·Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
· Samskipta og samstarfshæfni.
· Frumkvæði og faglegur metnaður.
· Ábyrgð í starfi og stundvísi.
· Skipulagshæfileikar.
· Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
· Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
Íslenska










