Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennarar - Leikskólinn Víðivellir

Leikskólinn Víðivellir óskar eftir að ráða áhugasama og metnaðarfulla kennara í fullt starf. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær byggir og rekur. Leikskólinn tók til starfa 28. febrúar 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Í upphafi var ein af deildunum sérdeild fyrir fötluð börn en árið 1993 var hún lögð niður þegar skóli án aðgreiningar var tekið upp og áhersla á blöndun fatlaðra og ófatlaðra barna. Hjá okkur eru um 100 börn með breytilega dvalartíma.

Hjá okkur starfar áhugasamt og skemmtilegt fólk, leikskólakennarar, þroskaþjálfar, starfsmenn með aðra háskólamenntun og leiðbeinendur. Lögð er sérstök áhersla á öfluga stoðþjónustu við nemendur með sérþarfir. Við erum í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Við leggjum mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín sem einstaklingur og við notum tækifæri hvers dags til að kenna börnunum á allar hliðar daglegs lífs.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
Reynsla af starfi á leikskólum æskileg
Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Jákvæðni, lausnarmiðun og sveigjanleiki
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
Fylgist vel með velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs
Vinnur náið í samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og aðaðlámskrá leikskóla
Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Fríðindi í starfi
Bókasafnskort
Heilsuræktarstyrkur
75% afsláttur af leikskólagjöldum
Sundkort
Forgangur á leikskóla
Auglýsing birt23. september 2022
Umsóknarfrestur7. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Miðvangur 39, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar