

Jólastarf í þjónustuveri ELKO
Við leitum að starfsmanni til starfa tímabundið í þjónustuveri yfir jólatímabilið. Ráðningartímabilið væri frá byrjun nóvember 2021 til lok janúar 2022.
Starfið felur í sér að að veita viðskiptavinum ELKO leiðsögn og þjónustu í gegnum ýmsa samskiptamáta t.d síma, netspjall, tölvupóst og samfélagsmiðla.
Afgreiðslutími í þjónustuveri er frá 09:00 til 21:00 alla virka daga og frá 12:00 til 21:00 um helgar
Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi og er boðið uppá sveigjanlegar vaktir sem eru yfirleitt 8 til 10 klst, bæði virka daga og um helgar.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í byrjun nóvember 2021.
Hæfniskröfur:
- 20 ára og eldri
- Góð tök á íslensku máli, bæði skriflega og munnlega
- Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum og samstarfsmönnum góða aðstoð og þjónustu
- Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Skipulagsfærni
- Reynsla og þekking á Navision kostur
- Hreint sakavottorð
- Reyklaus
Umsóknarfrestur er til 17.10.2021
Við hvetjum alla, sem uppfylla hæfniskröfurnar, til að sækja um!Elko starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.











