Securitas
Securitas
Securitas

Jólagæsla á Akureyri

Securitas leitar að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingum sem eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum og taka að sér starf öryggisvarða yfir jólavertíðina á Akureyri.

Helstu verkefni öryggisvarðar er að hafa eftirlit með rýrnun í verslunum, bregðast við boðum frá öryggishliðum og vera sýnileg/t/ur.

Ef þú….

  • Býrð yfir framúrskarandi þjónustulund
  • Hefur snyrtimennsku í fyrirrúmi
  • Býrð yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum
  • Réttir fram hjálparhönd

…..þá gætum við verið að leita af þér

Um er að ræða vaktavinnu yfir jólavertíðina sem miðast við opnunartíma verslana, sem er alla jafna milli 10:00 – 23:00.

Möguleiki er á áframhaldandi starfi um sumarið 2025.

Starfið hentar öllum kynjum sem náð hafa 18 ára aldri með góða íslenskukunnáttu og hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember næstkomandi. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Nánar upplýsingar um starfið veitir Jónas Björnsson, útibússtjóri á Akureyri í síma 580-7000.

Auglýsing birt17. október 2024
Umsóknarfrestur14. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar