Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Öryggisverðir í vaktavinnu á Suðurnesjum

Öryggismiðstöðin auglýsir eftir starsfólki í vaktavinnu á Suðurnesjum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega og sé tilbúin/nn/ð í fullt starf á bæði dag- og næturvöktum.

Starfið er á sviði Mannaðra lausna sem veitir fjölbreytta þjónustu öryggisvarða, meðal annars útkallsþjónustu, vaktferðir, verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu fyrir viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar. Um er að ræða starf á samheldnum, traustum og metnaðarfullum vinnustað.

Við leitum að einstaklingum til starfa sem hafa ástríðu fyrir öryggi og velferð annarra, eru jákvæðir og geta tekið ákvarðanir skjótt og vel. Við hvetjum öll kyn til að sækja um stöðuna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn öryggisgæsla og önnur skyld störf á vegum fyrirtækisins
  • Aðstoða viðskiptavini við úrlausn öryggistengdra verkefna
  • Almenn ábyrgð á öllum búnaði sem öryggivörður hefur til umráða hverju sinni
  • Önnur tilfallandi verkefni

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð Enskukunnátta
  • Gild ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt7. október 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Flugvallarbraut 740, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar