Alzheimersamtökin
Alzheimersamtökin
Alzheimersamtökin

Iðjuþjálfi með stjórnunarreynslu óskast

Alzheimersamtökin leita að iðjuþjálfa með stjórnunarreynslu til að veita forstöðu nýju þjónustuúrræði sem heitir Eljan og er ætlað einstaklingum á fyrstu stigum heilabilunar.

Eljan verður staðsett í Geðræktarhúsinu í Kópavogi og er sambærileg starfsemi Seiglunnar sem rekin hefur verið undanfarin ár í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði. Unnið er eftir hugmyndafræði iðjuþjálfunar og áhersla lögð á líkamlega, félagslega og vitræna virkni.

Um er að ræða einstakt tækifæri til að móta nýtt þjónustuúrræði til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með daglegum rekstri og stjórnun
  • Þróun og skipulag starfseminnar
  • Þjálfun og uppbygging teymis
  • Samskipti við þjónustuþega, aðstandendur og fagfólk
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem iðjuþjálfi
  • Reynsla af stjórnun
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Reynsla af vinnu með fólki með heilabilun er mikill kostur
  • Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kópavogsgerði 8, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar