

Laus er til umsóknar staða skólastjóra Norðlingaskóla
Laus er til umsóknar staða skólastjóra Norðlingaskóla
Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Reykjavík, þ.e. í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf og starfsmenn um 90.
Í Norðlingaskóla er áhersla m.a. á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks. Norðlingaskóli hefur verið leiðandi í að nýta náttúru og umhverfi skólans í námi barna og er hjarta samfélagsins. Áhersla er lögð á samráð við heimili, meðal annars með skólaboðunardegi á haustin.
Stefna og starf Norðlingaskóla grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
Á grundvelli samþykktar fyrir skóla- og frístundaráð ræður sviðsstjóri í starf skólastjóra og kjör miðast við kjarasamning KÍ v./skólastjórafélags Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stýra rekstri og daglegri starfsemi skólans, þar á meðal fjárreiðum, áætlanagerð og eftirfylgni.
Bera ábyrgð á og vinna að faglegri þróun skólans og vinna samkvæmt stefnu skólans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og stefnumótun Reykjavíkurborgar.
Standa vörð um farsæld, velferð og nám nemenda.
Styðja starfsfólk, ýta undir góðan starfsanda og efla faglegt lærdómssamfélag.
Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
Leiða stjórnunarteymi skólans og bera ábyrgð á sýn og stefnu skólans og frístundar í samvinnu við starfsfólk og nemendur.
Tryggja virkt og farsælt samstarf við foreldra, foreldrafélög, félagsmiðstöðvar, íþrótta- og menningarstarf, skólaþjónustu og aðra ytri hagaðila sem deila ábyrgð á velferð barna.
Hæfniskröfur:
Leyfisbréf sem kennari.
Grunnskólakennaramenntun er æskileg.
Framhaldsnám og reynsla af stjórnun í grunnskóla æskileg.
Þekking og reynsla af kennslu og skólastarfi á grunnskólastigi.
Farsæl stjórnunareynsla.
Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar.
Reynsla og áhugi á að starfa í hvetjandi og árangursríku skólasamfélagi.
Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
Lipurð og hæfni í samskiptum.
Faglegur metnaður, sjálfstæði og frumkvæði.
Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Íslenska



