

Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra Norðlingaskóla
Norðlingaskóli leitar að öflugum og framsýnum aðstoðarskólastjóra sem vill taka þátt í að leiða metnaðarfullt skólastarf í jákvæðu og þróunarmiðuðu skólasamfélagi.
Leitað er að leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á skólastarfi og velferð barna, býr yfir sterkri faglegri sýn og hefur getu til að efla samstarf, þróun og árangur í öflugu teymi starfsfólks.
Aðstoðarskólastjóri er hluti af stjórnendateymi skólans og gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumótun, þróun og daglegri stjórnun skólans.
Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf og þar starfa um 90 starfsmenn.
Áhersla Norðlingaskóla er m.a. á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks. Norðlingaskóli stendur í hjarta hverfisins og er mikilvægur hluti af samfélaginu.
Stefna og starf Norðlingaskóla grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
- Að leiða daglega stjórnun skólans í samstarfi við skólastjóra og gegna hlutverki staðgengils hans.
- Að móta og framfylgja sýn og stefnu skólans í samstarfi við starfsfólk og nemendur.
- Að leiða skipulag og þróun helstu þátta skólastarfs í samstarfi við stjórnunarteymi skólans.
- Að efla öflugt samstarfi innan skólasamfélagsins og stuðla að farsælum samskiptum.
- Að standa vörð um farsæld, velferð og nám nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
- Að vera faglegur leiðtogi á sviði kennslu, skólaþróunar og nýbreytni.
- Að efla jákvæða starfsmenningu, faglegt lærdómssamfélag og teymisvinnu meðal starfsfólks.
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Menntun á sviði grunnskólakennslu er æskileg.
- Framhaldsnám og reynsla af stjórnun og/eða þróunarstarfi í grunnskóla æskileg.
- Þekking og reynsla í kennslu á grunnskólastigi.
- Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar.
- Reynsla og áhugi á að starfa í hvetjandi og árangursríku skólasamfélagi.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður, sjálfstæði, skipulagshæfileikar og frumkvæði.
- Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Íslenska
