Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Í Salaskóla vantar sérfræðing í kennslu og þjálfun

Viltu vera hluti af frábærum hópi fagfólks í Salaskóla?

Í Salaskóla vinna þroskaþjálfar, kennarar og annað starfsfólk saman í teymum að kennslu og þjálfun nemenda og við undirbúning og skipulagningu náms. Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í starfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og á yfirstandandi skólaári eru nemendur um 530 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa ríflega 100 starfsmenn.

Helstu verkefni snúa að þjálfun og kennslu nemenda með sértækar þarfir, atferlisþjálfun, þjálfun í félagsfærni, gerð einstaklingsáætlana og ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila, sem og ÍSAT kennslu (íslenska sem annað tungumál). Viðkomandi mun vinna í þéttu teymissamstarfi við kennara og aðra samstarfsaðila að námi, þroska og velferð nemenda.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Ráðning er frá 1. janúar 2025
  • Ráðningarhlutfall er 100%, en mögulegt svigrúm til sveigjanleika (t.d. 70-80% hlutfall). Ráðning er tímabundin til loka skólaárs v/ forfalla en með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og leyfisbréf sem þroskaþjálfi eða kennari.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni.
  • Samstarfshæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
  • Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans og taka þátt í teymiskennslu og teymissamstarfi.
  • Vera tilbúin/n í þverfaglegt samstarf og uppbyggileg samskipti við foreldra og nærsamfélag, með velferð nemenda að leiðarljósi.
  • Skilyrði að hafa gott vald á íslensku.
  • Ef ekki næst að ráða fagfólk með leyfisbréf kemur til greina að ráða nema í meistaranámi í viðkomandi fagi. Við getum veitt nemum og nýútskrifuðum kennurum góða handleiðslu.

Nánari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að skila sakavottorði.

Upplýsingar gefa Kristín Sigurðardóttir skólastjóri, kristins@kopavogur.is (sími 840-2393) og Hrefna Björk Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri, hrefnabk@kopskolar.is

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins.

Auglýsing birt18. nóvember 2024
Umsóknarfrestur9. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.ÞolinmæðiPathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar