Skatturinn
Skatturinn

Hugbúnaðarsérfræðingar á Tæknisviði

Skatturinn er framsækin þjónustustofnun sem leggur grunn að samfélagslegri þjónustu með því að tryggja tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og leggjum okkar af mörkum til að vernda samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leitað er að lausnarmiðuðum hugbúnaðarsérfræðingum með brennandi áhuga á rafrænum lausnum, gögnum og greiningum. Á tæknisviði Skattsins sinna frábærir sérfræðingar fjölbreyttum verkefnum sem miða að liprum og öruggum stafrænum samskiptum við almenning. Störfin fela í sér þátttöku í greiningu og hönnun hugbúnaðarlausna, þróun og rekstur á upplýsingakerfum Skattsins, samskipti við samstarfsaðila vegna daglegra verkefna tengt tolla og skattframkvæmd og verkefni tengd hinum ýmsu sviðum upplýsingatækni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða skyldum greinum

  • Reynsla af stjórnun verkefna á sviði upplýsingatækni

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu, tolla- og skattframkvæmd er kostur

  • Þekking á helstu forritunarmálum er kostur

  • Hæfni til að koma upplýsingum og gögnum fram á skýran hátt

  • Fáguð framkoma og góð samskiptafærni

  • Jákvæðni og rík þjónustulund

  • Skipulögð, nákvæm, vandvirk og sjálfstæð vinnubrögð

  • Frumkvæði og metnaður

  • Geta til að vinna undir álagi og í teymi

  • Góð hæfni til að miða upplýsingum í minni og stærri hópa

  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu

  • Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

·              36 klukkustunda vinnuvika

·              Sveigjanlegur vinnutími og stuðningur til að vaxa í starfi

·              Frábært mötuneyti og líkamsræktaraðstöð

·              Samgöngustyrkur

Auglýsing birt11. apríl 2025
Umsóknarfrestur30. apríl 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar