Skatturinn
Skatturinn

Sérfræðistörf á Álagningarsviði

Skatturinn er framsækin þjónustustofnun sem leggur grunn að samfélagslegri þjónustu með því að tryggja tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og leggjum okkar af mörkum til að vernda samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skatturinn leitar að góðum liðsfélögum til starfa á Álagningarsviði með starfsstöð í Katrínartúni 6, Reykjavík.

Til umsóknar eru laus störf í lögaðiladeild, einstaklingsdeild og virðisaukaskattsdeild, en í þessum deildum fer fram álagning tekjuskatts, virðisaukaskatts, og annarra opinberra gjalda einstaklinga og lögaðila.  Álagningu gjaldanna tengjast önnur fjölbreytt verkefni s.s. skráning, þjónusta, eftirlit og afgreiðsla erinda og kæra.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Háskólamenntun á sviði lögfræði, viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum

• Þekking á reikningsskilum, málsmeðferðarreglum og almennri skattframkvæmd er æskileg

• Fáguð framkoma og góð samskiptafærni

• Jákvæðni og rík þjónustulund

• Skipulögð, nákvæm, vandvirk og sjálfstæð vinnubrögð

• Frumkvæði og metnaður

• Geta til að vinna undir álagi og í teymi

• Góð hæfni til að miða upplýsingum í minni og stærri hópa

• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

• Góð almenn tölvukunnátta

• Vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu

• Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

·         36 klukkustunda vinnuvika

·         Sveigjanlegur vinnutími og stuðningur til að vaxa í starfi

·         Frábært mötuneyti og líkamsræktaraðstöð

·         Samgöngustyrkur

Auglýsing birt10. apríl 2025
Umsóknarfrestur30. apríl 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar