
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Deildarstjóri sjúkraþjálfunar Hrafnistu
Staða deildarstjóra sjúkraþjálfunar hjá Hrafnistu í Reykjavík er laus til umsóknar. Deildarstjóri er leiðandi og hefur frumkvæði í þróun öldrunarsjúkarþjálfunar innan heimilisins. Í starfinu felst m.a. skipulagning á starfi ásamt daglegum rekstri og stjórnun.
Um er að ræða 100% starf
Starfssvið
- Stjórnun og rekstur á starfsemi sjúkraþjálfunardeildar
- Skipuleggur störf starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
- Sér um eftirlit og mat á gæðum sjúkraþjálfunar
- Skoðun, mat og meðferð
- Ráðgjöf og fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Menntun og/eða reynsla í stjórnun er kostur
- Jákvæðni, frumkvæði og sjálfstæði
- Góð samskiptahæfni og faglegur metnaður
- Þekking á RAI mælitækinu er kostur
Við bjóðum upp á jákvæðan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Stefánsdóttir í síma 664-9400 eða [email protected]
Auglýsing birt12. júní 2019
Umsóknarfrestur26. júní 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (4)

Iðjuþjálfi eða sjúkraþjálfari í hjálpartækjaráðgjöf
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Sjúkraþjálfari óskast í endurhæfingarteymi Takts í Lífsgæðasetri St. Jó
Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna

Sjúkraþjálfarar óskast á nýja sjúkraþjálfunarstofu
Vera Sjúkraþjálfun ehf.

Sjúkraþjálfari í heilsueflandi móttöku
Heilsugæslan Kirkjusandi