Íslandshótel
Íslandshótel
Íslandshótel

Hótelstjóri | Hotel Manager

Við leitum að öflugum hótelstjóra á Fosshótel Núpa frá og með 1. september 2025

Hótelstjóri skipuleggur og stýrir daglegum rekstri hótelsins þ.á.m. gestamóttöku, bókunum, veitingastað, þrifum, viðhaldi fasteignar og mannauðsmálum. Hótelstjóri vinnur náið með aðalskrifstofu í sölu og markaðsmálum og sér til þess að hótelið uppfylli gæðastaðla og rekstraráætlun fyrirtækisins. Hótelstjóri leiðir hóp starfsmanna og ber ábyrgð á hagkvæmum rekstri með velferð og ánægju starfsmanna og gesta að leiðarljósi.

Hæfniskröfur

  • Árangursrík reynsla sem stjórnandi í hótel og/eða veitingarekstri
  • Menntun á sviði hótelstjórnunar eða iðnnám í fram- eða matreiðslu kostur
  • Afbragðs færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
  • Fjármálalæsi og greiningarhæfni
  • Góð kerfis- og tölvukunnátta, þekking á Opera Cloud, Business Central og H3 kostur

Ábyrgð

  • Fagleg stjórnun, leiðsögn, samræming og þróun starfsmanna
  • Fjármál og rekstrargreiningar
  • Þjónustu-, gæða- og öryggisstjórnun
  • Verkefna- og ferlastýring
  • Rekstur og viðhald fasteignar

Hótelstjóri mun hafa nýbyggða séríbúð til afnota.

Hlutverk Íslandshótela er einstök gestrisni.

Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum:

Fagmennska - Samvinna - Hugrekki

Umsækjendur eru beðnir að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.

Óskir um nánari upplýsingar sendist á Hjört Valgeirsson, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs, [email protected]

Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2025.

Lærðu meira um Fosshótel Núpa

----------

We are seeking to hire a Hotel Manager at Fosshótel Núpar from September 1st 2025

Hotel manager prepares and manages the daily operations of the hotel including reception, reservations, restaurant, housekeeping, property maintenance and human resources. Hotel manager works closely with the head office in sales and marketing and makes sure the hotel operates according to the company´s quality and operational standards. The hotel manager leads a team of employees, is responsible for delivering operational profits while keeping the wellbeing of both guests and employee´s as the foundation.

Qualifications

  • Successful managerial experience in hotels and/or restaurants.
  • Education in the field of hotel management and/or education in food service or culinary arts is an advantage.
  • Excellent interpersonal skills, positive attitude, and passion for quality service.
  • Financial literacy and analytical skills
  • Good system and computer skills. Opera Cloud, Business Central and H3 knowledge is an advantage.

Responsibilities

  • Professional management, ability to lead, coordination and development of employees.
  • Finance and business operational analysis
  • Services, quality, and safety management
  • Project and process management
  • Operation and maintenance of the hotel property

The hotel manager will have a newly built apartment for private use.

Applicant must be willing to learn Icelandic upon hiring.

The mission of Íslandshótel is exceptional hospitality.

The passionate team of Íslandshótel operates according to the following values:

Professionalism - Cooperation - Courage

Applicants are asked to send an application including a CV and a cover letter.

Requests for further information is available through Hjörtur Valgeirsson Chief Operations Officer, [email protected]

All applications are confidential and will be responded to. It´s possible to apply for the position until and throughout August 8th, 2025.

Learn more about Fosshotel Núpar

Auglýsing birt18. júlí 2025
Umsóknarfrestur8. ágúst 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Núpar, 880 Kirkjubæjarklaustur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar