
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Hofsstaðaskóli - stuðningsfulltrúar, framlengt til 10. ágúst
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúum í 75 – 100% starf skólaárið 2026-2027. Vinnutími er frá kl. 8:00-14:30/16:00. Stuðningsfulltrúar vinna með nemendum í nánu samstarfi við kennara, þroskaþjálfa og annað fagfólk á skólatíma og í frístundaheimili skólans.
Í Hofsstaðaskóla verða um 460 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Þjónusta við nemendur er öflug.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
- Vinna eftir áætlun sem kennari hefur útbúið
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með börnum
- Reynsla af nemendum með sérþarfir æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Auglýsing birt6. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (9)

Frístundaheimilið Álftamýri - starfsmaður
Garðabær

Álftanesskóli - stuðningsfulltrúi
Garðabær

Hofsstaðaaskóli - umsjónarkennari
Garðabær

Ungmennahraun - starfsfólk vantar
Garðabær

Sjálandsskóli - stuðningsfulltrúar
Garðabær

Frístundaheimilið Krakkakot (Flataskóla)- leiðbeinandi
Garðabær

Flataskóli - stuðningsfulltrúi
Garðabær

Bæjarból - leikskólakennari
Garðabær

Bæjarból - aðstoðarleikskólastjóri afleysing
Garðabær
Sambærileg störf (12)

Álftanesskóli - stuðningsfulltrúi
Garðabær

Stuðningsfulltrúi í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Stuðningsfulltrúi í Hagaskóla
Hagaskóli

Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi
Borgarbyggð

Hamraskóli - laus staða stuðningsfulltrúa
Hamraskóli

Frístundaleiðbeinendur í Vatnsendaskóla
Vatnsendaskóli

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Leikskólinn Aðalþing - (sér)kennsla
Aðalþing leikskóli

Stuðningur og leiðbeinandi í leikskólann Álfaborg
Svalbarðsstrandarhreppur

Nesskóli óskar eftir stuðningsfulltúa og frístundarleiðbeinanda
Nesskóli

Laus staða stuðningsfulltrúa og starfsmanna í frístund
Heiðarskóli