

Gagnasérfræðingur – Data & Analytics
Eru gögn og gagnagreining eitthvað fyrir þig?
Hefur þú brennandi áhuga á gögnum og nýtingu þeirra til að aðstoða fyrirtæki við að ná betri árangri?
Vilt þú vinna með stærstu fyrirtækjum landsins við að nýta sér hraðar tækniframfarir á sviði gagnavinnslu, gagnagreiningar og gervigreindar?
Origo hefur ofurtrú á auknu mikilvægi gagnadrifinna lausna og við viljum vaxa hratt á sviði gagnalausna, viðskiptagreindar og gagnagreiningar á næstu misserum. Við leitum því að metnaðarfullum einstaklingum til að taka þátt í þessari uppbyggingu með okkur.
Við erum að byggja upp öflugt teymi og leitum að einstaklingum með ólíkan bakgrunn innan gagnasviðsins, allt frá gagnaverkfræði og gagnalíkönum yfir í gagnagreiningu, skýrslugerð og innsýn.
Við leggjum mikla áherslu á þekkingaröflun starfsfólks og því er þetta frábært tækifæri fyrir þau sem vilja starfa í umhverfi þar sem ávinningur viðskiptavina og starfsþróun fara saman.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Þátttaka í þróun gagnalausna og greiningarlausna sem auka verðmæti vöruframboðs Origo
-
Þróun og uppbygging nútímalegra gagnapalla og gagnalausna
-
Vinna með gagnavinnslu, gagnalíkönum, gagnagreiningu og miðlun gagna til notenda
-
Þróun mælaborða, skýrslugerðar og innsýnar fyrir viðskiptavini
-
Þátttaka í útfærslum á sviði gervigreindar og nýtingu gagna
-
Samskipti við vörustjóra, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila innan Origo
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Tölvunarfræði, stærðfræði, verkfræði, gagnavísindi eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi
-
Reynsla af vinnu með gögnum, gagnalausnum eða gagnagreiningu
-
Reynsla eða þekking á tækni eins og:
• Microsoft Fabric
• Power BI
• SQL og gagnalíkön
• Python -
Þekking á Microsoft tæknistakknum er kostur, t.d.:
• Azure
• Power Platform
• Copilot eða tengdum lausnum -
Sjálfstæði, frumkvæði og forvitni gagnvart gögnum og nýrri tækni eru mikilvægir eiginleikar.
Fríðindi
-
Framúrskarandi vinnuaðstaða
-
Sveigjanlegur vinnutími
-
Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
-
Öflug velferðar- og heilsustefna
-
Frábært mötuneyti
Origo er þjónustu- og þekkingarfyrirtæk sem vinnur með fyrirtækjum að því að ná forskoti í breyttum heimi þar sem tæknin skiptir öllu máli. Með snjöllum og öruggum lausnum hjálpum við fyrirtækjum og stofnunum að öðlast forskot í stafrænum heimi sem er á fleygiferð. Hjá okkur starfa um 200 manns sem vinna saman að því að skapa betri tækni sem bætir líf fólks. Við leggjum áherslu á liðsheild, fagmennsku og stöðuga þróun.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.











