
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun hefur umsjón með stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, fasteigna, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála og mála er varða byggingarvörur og brunavarnir.
Stofnuninni er ætlað að stuðla að því að jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði, m.a. með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Einnig skal stofnunin leitast við að tryggja að almenningur hafi aðgang að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði og í samræmi við þarfir hvers og eins, óháð efnahag og búsetu, þannig að almenningur hafi raunverulegt val um búsetuform.
Stofnunin gegnir jafnframt samræmingarhlutverki, sinnir samstarfi við sveitarfélög um stjórnsýslu húsnæðis-og mannvirkjamála og stuðlar að fyrirsjáanleika, skilvirkni og gæðum mannvirkjagerðar. Húsnæðis-og mannvirkjastofnun annast umsýslu Húsnæðissjóðs. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki og eru starfsmenn 160 talsins.

Sumarstarf í eftirliti fagaðila og rafmagnsöryggi hjá HMS
Hefur þú áhuga á sumarstarfi á nútímalegum vinnustað sem ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála? Þá gæti sumarstarf hjá HMS verið fyrir þig.
Sumarstarfsfólk fær tækifæri til að starfa með frábærum sérfræðingum á ýmsum sviðum og öðlast innsýn og þekkingu á starfsemi HMS.
HMS óskar eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í teymi eftirliti fagaðila og rafmagnsöryggi. Starfið er tilvalið fyrir námsmenn eða nýútskrifaða t.d. í verkfræði, byggingafræði, tæknifræði og/eða með sveinspróf í löggildri iðngrein.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, úrvinnsla og svörun fyrirspurna
- Eftirlit og eftirfylgni með skráningu gagna í mannvirkjaskrá
- Samskipti við fagaðila í mannvirkjagerð
- Ráðgjöf og fræðsla til fagaðila í mannvirkjagerð
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf er skilyrði
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur
- Skipulagshæfni og nákvæmni
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku skilyrði
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Full-stack forritari
Total Tempo ehf.

Stöðvarstjóri Mývatnssvæðis
Landsvirkjun

Sumarstarf á eignadeild umhverfissviðs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Jibby gæðakerfi – Sjálfstæði - Fjarvinna
Uppstreymi ehf

Verkfræðingur á sviði brúarhönnunar
Vegagerðin

Áltak óskar eftir söluráðgjafa Doka
Áltak

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

UPPLÝSINGATÆKNISTJÓRI
SÁÁ

Óska eftir að ráða smið eða menn með mikla reynslu
ÞÁ smíðar ehf

Verkstjóri byggingaframkvæmda
Verkgarðar

Tækni- eða vélaverkfræðingur
First Water

Director Line Maintenance
Air Atlanta Icelandic