
Stjórnsýslusvið
Múlaþing er sveitarfélag á Austurlandi með um 5.300 íbúum. Undir Múlaþing heyra Fljótsdalshérað, Djúpivogur, Borgarfjörður eystri og Seyðisfjarðarkaupstaður.
Stjórnsýslusvið sér um atvinnu-og menningarmál og stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi
Auglýst er eftir starfsmanni í stöðu fulltrúa sveitarstjóra á Djúpavogi.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í lifandi umhverfi. Starfsmaður er staðgengill sveitastjóra á Djúpavogi og hefur umsjón með daglegum rekstri sveitarfélagsins á staðnum í samráði við sveitarstjóra og yfirmenn viðkomandi sviða. Starfið er 100% framtíðarstarf.
Umsækjandi þarf að vera búsettur innan marka fyrrum Djúpavogshrepps og geta hafið störf um mánaðarmót ágúst/september 2022.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi og mikil starfs- og stjórnunarreynsla.
Gerð er krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Gerð er krafa um mikla þekkingu á sveitarstjórnarmálum.
Gerð er krafa um góða þekkingu á staðarháttum innan fyrrum Djúpavogshrepps.
Góð tölvukunnátta skilyrði.
Góð íslensku-og enskukunnátta og gott vald á að skrifa texta.
Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Þekking á rekstri verkefna og gerð rekstraráætlana mikilvæg.
Skipstjórnarréttindi kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Er staðgengill sveitarstjóra og sinnir daglegum rekstri sveitarfélagsins á Djúpavogi.
Situr og undirbýr fundi með heimastjórn Djúpavogs, sér um ritun fundargerða og passar að afgreiðslur heimastjórnar komist í réttan farveg.
Er staðgengill hafnarstjóra og vinnur m.a. við stefnumótun hafna Múlaþings auk áætlunargerðar með hafnavörðum.
Hefur yfirumsjón með vinnu er snúa m.a. að gæðamálum, hafnarvernd, verndaráætlun, öryggismálum, viðbragðsáætlunum, umhverfismálum o.fl.
Ábyrgð á þjónustu hafnarmála fyrir umhverfis- og framkvæmdaráð og eftirfylgni ákvarðana þess.
Auglýsing birt12. júlí 2022
Umsóknarfrestur1. ágúst 2022
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bakki 1, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiReyklausSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStefnumótunTextagerðVinna undir álagiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Gagnaöflun - spyrill
Hagstofa Íslands

Viltu leiða stórt Evrópuverkefni?
EIMUR

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Skipulagsstjóri
Reykjalundur

Fulltrúi starfsánægju og skrifstofu
Wise lausnir ehf.

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Sérfæðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf - Only Icelandic speaking!
ATC

Innkaup og þjónusta
Rubix Ísland ehf

Fulltrúi í þjónustu við netverslanir
TVG-Zimsen

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía