Varmárskóli
Varmárskóli
Varmárskóli

Frístundaleiðbeinendur óskast til starfa

VARMÁRSKÓLI LEITAR AÐ ÖFLUGUM FRÍSTUNDALEIÐBEINENDUM TIL STARFA

Vilt þú leika þér í vinnunni? Nú vantar okkur hresst og skemmtilegt fólk, stráka og stelpur, konur og karla við vinnu sem frístundaleiðbeinendur í vetur við Varmárskóla. Í boði er skemmtilegt starf með nemendum okkar í 1. - 4. bekk. Við leitum eftir frístundarleiðbeinendum sem hafa áhuga á hvetjandi og skemmtilegu starfi með börnum þar sem leikurinn er í fyrirrúmi. Í okkar starfi viljum við búa til öruggt og skemmtilegt umhverfi fyrir börn og starfsfólk til njóta þess tómstundarstarfs sem við höfum upp á að bjóða. Vinnutími er frá 13 - 17 og möguleiki er að vera ákveðna daga, því er starfið tilvalið með skóla.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla sem nýtist í starfi
Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
Góð færni í samvinnu og samskiptum
Áhugi á starfi með börnum
Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt4. ágúst 2022
Umsóknarfrestur18. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar