Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Framtíðarstarf - 60% starf stuðningsfulltrúa í vaktavinnu

Velferðarsvið óskar eftir að ráða starfsmann í íbúðakjarna sem í eru 6 einstaklingsíbúðir fyrir fólk með fötlun, 40 ára og eldri í Grafarholti.

Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára.

Um er að ræða vaktavinnu í ca. 60% starfshlutfalli.

Verið er að leita eftir starfsmanni til að vinna í vaktavinnu, dagvaktir, kvöldvaktir og önnur hver helgi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
  • Unnið er eftir þjónandi leiðsögn og hugmyndafræði um sjálfstætt líf.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg en ekki skilyrði.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Umhyggja og þolinmæði.
  • Bílpróf kostur
  • Góð íslenskukunnátta (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Fríðindi í starfi

Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.

Auglýsing birt1. ágúst 2025
Umsóknarfrestur19. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar