

Tómstundaleiðbeinendur í Mosann – Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinendur í Mosann sem er tómstundamiðstöð skólans. Í tómstundamiðstöðinni er félagsmiðstöð fyrir 10-16 ára börn.
Um er að ræða c.a 25% starfshlutfall þar sem unnið er frá kl.16:55 til 22:05 virka daga. Starfið hentar vel fyrir skólafólk, eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
- Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
- Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
- Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
- Vinnur að upplýsingaflæði til barna, foreldra og samstarfsaðila
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum
- Íslenskukunnátta
- Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
- Almenn tölvukunnátta
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, [email protected] eða Lars Jóhann Imsland Hilmarsson skólastjóri, [email protected] og í síma 590 2800.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2025.
Greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.



























