

Framkvæmdastjóri Listar án landamæra Listahátíðar
Ert þú næsti framkvæmdastjóri Listar án landamæra?
List án landamæra er listahátíð sem leggur áherslu á list eftir fatlað listafólk. Skoðið vefsíðuna okkar hér.
Helstu hlutverk framkvæmdastjóra eru að sjá um fjármál og praktísk atriði en starfið felur líka í sér skapandi vinnu með listrænum stjórnanda hátíðarinnar.
Nánar um starfið:
List án landamæra er listahátíð þar sem stór hópur fólks, fatlaðir og ófatlaðir, sýnir listsköpun sína: myndlist, leiklist, tónlist og handverk. Í ár mun hátíðin eiga sér stað í október en það verða líka nokkrir viðburðir vor og sumar 2024. Þegar er starfandi við hátíðina einn starfsmaður sem listrænn stjórnandi. Möguleiki er á því að starfsmenn bætist við í einstök verkefni á borð við markaðssetningu.
Listrænn stjórnandi starfar í umboði sex manna stjórnar og framkvæmdastjóri er ráðinn af listrænum stjórnanda með samþykki stjórnar. Ráðningartímabil hefst sem fyrst og stendur til desember 2024 (með möguleika á framlengingu). Um er að ræða að meðaltali 50% starf þar sem vinnutími er sveigjanlegur og eftir samkomulagi. Gera skal ráð fyrir því að vinnuálagið verði mest í kringum hátíðina, þ.e. í september og október.
Hlutverk
-
Heldur utan um styrktarumsóknir
-
Fjármálaumsjón
-
Praktískt skipulag sýninga og viðburða
-
Hugmyndavinna með listrænum stjórnanda og listafólki
-
Umsjón með markaðssetningu og samfélagsmiðlum ásamt listrænum stjórnanda
-
Ráðning starfsfólks í sérverkefni ásamt listrænum stjórnandi og stjórn (ljósmyndara, grafíska hönnuði, o.þ.h.)
Hæfniskröfur
-
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
-
Reynsla af styrktarumsóknum
-
Reynsla af bókhaldsvinnu
-
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
-
Reynsla af viðburðarskipulagi og/ eða menningartengdri verkefnastjórnun
-
Þekking og áhugi á listum
-
Þekking og áhugi á málefnum fatlaðs fólks
Umsóknarfrestur er til með 26. janúar 2024. Sendið ferilskrá og kynningarbréf á [email protected] eða sækið um í gegnum Alfreð.
Öllum umsóknum verður svarað.
Ertu með spurningar? Spurningum svara listrænn stjórnandi, Jóhanna Ásgeirsdóttir, [email protected]











