
Kraftur
Stuðningsfélagið Kraftur var stofnað 1. október 1999 og hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Félagið er fyrir fólk á aldrinum 18 – 40 ára en þar sem félagið er einnig fyrir aðstandendur er fólk á öllum aldri í félaginu. Félagið hefur aðstöðu hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands án endurgjalds og er KÍ einn helsti styrktaraðili Krafts en félagið er einn af stuðningshópum Krabbameinsfélagsins.
Megin markmið Krafts eru að styðja við ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur með því að halda úti jafningjastuðningi, hagsmunagæslu, öflugri fræðslu, samveru á jafningjagrunni, veita hagnýtar upplýsingar og stuðla að samvinnu félagasamtaka, heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem koma að málefnum þeirra sem tengjast sjúkdómnum.
Starfsemi Krafts felst í því:
að veita andlegan og félagslegan stuðning við þá sem greinast og aðstandendur þess.
að gæta hagsmuna félagsmanna og standa vörð um réttindi þeirra gagnvart opinberum aðilum.
að halda úti öflugu stuðningsneti þar sem áhersla er lögð á jafningjastuðning byggðan á persónlegri reynslu.
að veita félagsmönnum sálfræðiþjónustu.
að reka Neyðarsjóð Krafts.
að standa fyrir útgáfu á árlegu fréttabréfi og fræðsluefni í formi bæklinga og bóka.
að halda reglulegar uppákomur í nafni félagsins t.a.m. kaffihúsakvöld, sumargrill, aðventukvöld og fleira.

Framkvæmdastjóri
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, leitar að drífandi einstakling með hjarta fyrir málstaðnum í tímabundið starf framkvæmdastjóra félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni.
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti.
Reynsla af fjáröflun er kostur.
Reynsla af störfum fyrir félagasamtök er kostur.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Hjarta fyrir málstað Krafts.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun Krafts.
Framkvæma stefnu félagsins sem sett í samstarfi við stjórn.
Yfirumsjón með kynningar- og markaðsstarfi.
Yfirumsjón með hagsmunagæslu og fræðslu.
Mannauðsstjórnun.
Skipulagning og vinna við fjáröflun.
Verkefnastjórnun á viðburðum/dagskrá félagsins.
Ábyrgð á áætlanagerð og fjármálastjórn.
Undirbúningur stjórnarfunda og þátttaka.
Önnur verkefni í samræmi við stjórn.
Auglýsing birt29. júlí 2022
Umsóknarfrestur15. ágúst 2022
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðMannauðsstjórnunSkipulagVerkefnastjórnunVerkefnastjórnun í upplýsingatækni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Korpuskóli, Barðastöðum 2, óskar eftir sjúkraliða til starfa við skólann
Klettaskóli

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Aðstoð vantar á tannlæknastofu.
Tannlæknastofan Lindarbros

Uppsetningar
Titus

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali

Óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á föstudögum og afleysingar.
NPA miðstöðin

Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali

Icekorea leitar að sölumanneskju / söluráðgjafa
Icekorea

Aðstoð á iðjuþjálfunardeild
Reykjalundur

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins