Knattspyrnudeild Keflavíkur
Knattspyrnudeild Keflavíkur

Framkvæmdastjóri knd. Keflavíkur

Knattspyrnudeild Keflavíkur auglýsir laust til umsóknar starf Framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri Keflavíkur hefur yfirsýn yfir alla starfsemi deildarinnar og fylgir eftir stefnu og markmiðum stjórnar. Þá sér Framkvæmdastjóri um að samræma störf starfsmanna deildarinnar og sjálfboðaliða.

Framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildarinnar þarf að hafa reynslu og þekkingu á rekstri, geta sett saman og staðið við fjárhagsáætlanir og vinna ötullega að því að viðhalda og finna nýjar leiðir til að afla tekna fyrir deildina. Framkvæmdastjóri gætir hagsmuna Keflavíkur í hvívetna gagnvart hagsmunaaðilum.

Hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur starfar yfirmaður knattspyrnumála sem vinnur náið með framkvæmdastjóra að málefnum knattspyrnuliða, barna- og unglingaráðs og afreksstefnu. Ekki er gert krafa um reynslu úr knattspyrnuheiminum en brennandi áhugi á íþróttinni er nauðsynlegur.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af rekstri
Þekking á gerð fjárhagsáætlana
Sjálfstæð vinnubrögð
Leiðtogahæfni
Afburða samskiptahæfni
Helstu verkefni og ábyrgð
Fylgja eftir stefnu og markmiðum stjórnar
Samræma störf starfsmanna og sjálfboðaliða
Sjá um sölu og kaup á leikmönnum í samráði við yfirmann knattspyrnumála
Útbúa og standa við fjárhagsáætlanir
Viðhalda viðskiptasamböndum og afla tekna fyrir deildina
Samskipti við samfélag og hagsmunaaðila
Skipulag á leikdögum í samráði við starfsmenn og sjálfboðaliða
Auglýsing birt26. október 2021
Umsóknarfrestur10. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sunnubraut 34, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Sölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar