Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs

Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum aðila í starf framkvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna. Framkvæmdastjóri vinnur að stefnumótun og framþróun í þjónustu Hrafnistu í samvinnu við æðstu stjórnendur fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs situr í framkvæmdaráði Hrafnistu. Heilbrigðissvið er stoðsvið fyrir öll heimili Hrafnistu og hefur það meginhlutverk að efla gæði og hafa yfirumsjón með faglegri þróun í vinnubrögðum. Það er gert með það fyrir augum að veita framúrskarandi þjónustu fyrir þjónustuþega og starfsfólk Hrafnistu.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur og stjórnun heilbrigðissviðs
  • Yfirumsjón með gæða- og öryggismálum
  • Fylgja eftir lögum og reglum tengt starfsemi Hrafnistu
  • Aðkoma að uppbyggingu fræðslu og þjálfunar starfsfólks
  • Samskipti við hagaðila Hrafnistu
  • Nýsköpun og þróun í heilbrigðisþjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
  • Yfirgripsmikil reynsla af heilbrigðismálum og þekking á gæðamálum nauðsynleg
  • Reynsla af stjórnun og rekstri
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni
  • Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum
Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar